Heimspeki á Vísindavefnum

escherÁ Vísindavef háskóla Íslands er heilmikið af heimspekilegu efni. Heimspekikennarar á unglingastigi grunnskólans hafa nýtt þetta efni á ýmsan hátt. Þegar nemendur eru að kynnast heimspeki í fyrsta sinn getur verið mjög hjálplegt að sjá úrval heimspekilegra spurninga og margvísleg svör við þeim og  þetta er einmitt til staðar á Vísindavefnum.

Jóhann Björnsson heimspekikennari í Réttarholtsskóla hefur leyft nemendum að leita frjálst á Vísindavefnum og velja þaðan uppáhaldsspurningarnar sínar. Þessu úrvali spurninga er hægt að safna saman, t.d. í hatt og nýta á ýmsan hátt. Það má láta hattinn ganga um stofuna, hver nemandi dregur spurningu úr hattinum og hún er rædd í 5 mínútur í bekknum. Það má nýta spurninga úrvalið í heimspekileik eins og Jason Buckley gefur uppskrift að hér í Verkefnabankanum.

Hér að neðan er kennsluseðill frá Brynhildi Sigurðardóttur heimspekikennara í Garðaskóla. Í verkefninu er röð spurninga sem eru ætlaðar til að leiða nemendur inn í rannsókn á Vísindavefnum. Nemendur þurfa að velta fyrir sér hvað einkennir heimspekilega spurningu og spyrja sjálfir slíkra spurninga. Þessu verkefni hafa nemendur skilað til yfirferðar og það hefur gefið kennurum mikilvæga innsýn í upphafi skólaárs um styrkleika og veikleika nemenda í skriflegum vinnubrögðum. Þær upplýsingar nýta þeir til að meta hversu mikið skrifleg verkefni eru nýtt á skólaárinu til viðbótar við heimspekilegu samræðuna sem er uppistaða námsins í heimspekivali skólans.

Verkefnið í hnotskurn
  • Aldur nemenda: 13-16 ára
  • Viðfangsefni: heimspeki, Vísindavefurinn, læsi
  • Færnimarkmið af þrepi 1: nemandi segir skoðun sína og rökstyður mál sitt.
  • Viðhorfamarkmið af þrepi 1: nemandi einbeitir sér að viðfangsefninu, þorir að segja skoðun sína (og skrifa), sýnir vilja til að útskýra mál sitt.
  • Auk þessar markmiða í samræðuþjálfun miðar verkefnið að því að þjálfa ýmsa þætti læsis: að nálgast texta, lesa hann og greina, að umorða og bregðast við rituðum skoðunum.
  • Efni og áhöld: Ljósrit af verkefninu fyrir hvern nemanda, aðgangur að nettengdum tölvum
  • Tími/umfang: 60-120 mínútur
  • Höfundur verkefnis: Brynhildur Sigurðardóttir
Kennsluseðillinn
Svör
Matsblað, sýnishorn
Skrifað í Þekkingarfræði, Gagnrýnin hugsun, Grunnskóli, unglingastig, Læsi, Spurnarfærni
%d bloggurum líkar þetta: