Gone baby gone

gone-baby-goneKvikmyndin Gone baby gone kveikir ýmsar siðferðilegar spurningar og Ragnheiður Eiríksdóttir framhaldsskólakennari hefur samið verkefni þar sem nemendur takast á við þessar spurningar í gegnum hlutverkaleik. Með því að setja sig í spor ákveðinna sögupersóna fá nemendur tækifæri til að máta rök og sjónarmið án þess að þurfa að skuldbinda sig persónulega. Slík fjarlægð í samræðunni getur gefið henni tækifæri til að horfa víðar og kafa dýpra.

Verkefnið í hnotskurn
  • Aldur nemenda: framhaldsskóli
  • Viðfangsefni: siðfræði, réttlæti, samfélag, vald, lög og regla, þrískipting valds, réttarhöld
  • Færnimarkmið:
    • Þrep 3: Nemandi gerir greinarmun á staðreyndum og gildum, getur útskýrt ólík sjónarmið, gagnrýnir uppbyggilega
  • Viðhorfamarkmið:
    • Þrep 3: Nemandi virðir skoðanir annarra þannig að þær geta raunverulega haft áhrif á hugsun hans, heldur aftur af eigin hugmynd í þágu rannsóknar
  • Efni og áhöld: Kvikmyndin Gone Baby Gone, ljósrit af verkefnablöðum (sjá neðar í kennsluseðlinum)
  • Tími/umfang: Kvikmyndasýning og umræður 2-4 kennslustundir, Hlutverkaleikur 1-2 kennslustundir.
  • Höfundur verkefnis: Ragnheiður Eiríksdóttir, kennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands
Kennsluseðillinn
Skrifað í Framhaldsskóli, Heilbrigði og velferð, Hlutverkaleikir, Kvikmyndir, Lýðræði og mannréttindi, Siðfræði
%d bloggurum líkar þetta: