Hugtakaleikir eru samræðuverkefni sem unnin eru til að skilgreina hugtak sem kennari eða nemendur hafa ákveðið að taka fyrir. Kveikjan er dæmasafn og í þessum hugtakaleik er dæmasafnið úrval setninga sem lýsa einföldum aðstæðum. Leikurinn hentar vel nemendum á mið- og unglingastigi.
Verkefnið í hnotskurn
- Aldur nemenda: 10-16 ára
- Viðfangsefni: réttlæti
- Færni- og viðhorfamarkmið: Hugtakaleikir ná að þjálfa flesta færniþætti sem skilgreindir eru í námskrá Verkefnabankans
- Efni og áhöld: Útprentuð dæmaspjöld, þrjú afmörkuð svæði í heimakrók eða á töflu, merkt með skiltum (réttlæti, ekki réttlæti, ?)
- Tími/umfang: 80-120 mínútur
- Höfundur: Clinton Golding, höfundur bókarinnar Connecting Concepts (2002)
- Þýðing og viðbætur: Brynhildur Sigurðardóttir
- Mynd í verkefninu: Justice eftir Guiseppe Salviati
- Kennsluseðill