Til að búa nemendur undir að taka þátt í samræðu alls bekkjarins er gott að gera skemmtilegar æfingar þar sem nemendur tala saman í minni hópum eða pörum. Spakmælatennis er slíkur leikur.
Verkefnið í hnotskurn
- Aldur nemenda: 10 ára og upp úr
- Viðfangsefni: spakmæli, sköpun, þora að tala upphátt
- Færnimarkmið: hlusta og horfa á þann sem talar
- Viðhorfamarkmið: sýna vilja til að hugsa með öðrum
- Efni og áhöld: í þessa æfingu þarf lítið sem ekkert. Kennarinn þarf að undirbúa innlögn um spakmæli, til dæmis með skýringum sem gefnar eru á þessum kennsluseðli
- Tími/umfang: 10-30 mínútur
- Höfundur verkefnis: Jason Buckley
- Þýðing og viðbætur: Brynhildur Sigurðardóttir